Létt

Penne með grænmeti, sveppum og jurtum

handa fjórum
350 g penne (De Cecco)
30 g sveppir
30 g kóngasveppir, ferskir eða þurrkaðir (leggið þá þurrkuðu í bleyti í 20 mín. í heit vatn og síið áður en eru notaðir)
20 g skalotlaukur
80 g fersk rauð paprika
80 g ferskur kúrbítur (zucchini)
80 g grillaðar paprikur frá Saclà
50 g grillað zucchini frá Saclà
jómfrúrólífuolía e. þörfum
lítið búnt af blönduðum kryddjurtum: steinselju, rósmarín og tímían
150 g peperonata frá Saclà
salt og pipar e. smekk
parmesanflögur e. smekk

 

Sjóðið penne í vænu magni af léttsöltu vatni (notið gróft salt). Þrífið sveppina og skerið í bita. Skerið laukinn í þunnar sneiðar. Skerið fersku paprikuna og zucchini og dembið í sjóðandi vatn í 5 mín. Hitið olíuna á pönnu og hitið í 5 mín. og bætið síuðu Saclà-grænmetinu við ásamt litlu búnti af saxaðri steinselju. Bætið vel sigtuðu pastanu út á pönnuna ásamt Saclà peperonata og blandið öllu vel saman við háan hita. Smakkið til með salti og pipar og skreytið með parmesanflygsum og smátt söxuðum blönduðum kryddjurtunum.

 

 

Undirbúningstími: 10 til 15 mínútur

 

Eldunartími: innan við 20 mínútur
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Það er alltaf tilhlökkunarefni að líta við hjá þér. Þú endurvekur svo sannarlega áhugan á eldamennskunni hjá mér. Mun prófa mig áfram þegar Eyjólfur hressist 

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 25.2.2008 kl. 23:58

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Namm þessi verður prófuð fljótlega, það er verst hvað þessar saclá vörur eru dýrar, prófa þetta samt

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 26.2.2008 kl. 00:26

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Girnilegt.

Hólmdís Hjartardóttir, 26.2.2008 kl. 06:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðjón H Finnbogason
Guðjón H Finnbogason

Ég er kokkur og hef unnið við matargerð síða 1963. 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband