Miðvikudagur, 27. febrúar 2008
Kálfur og pasta
Pönnusteikt kálfakjöt á pappardellebeði

2 sneiðar kálfasnitsel (eða svínasnitsel), fitusnyrtar og skornar í strimla
200 gr. papardelle pasta frá DeCecco
1/2 krukka SACLÁ sveppa og marsala sósa
50 ml. marsala vín
2 msk. matarrjómi eða sýrður rjómi
1 msk. ósaltað smjör
1 lárviðarlauf
Sjávarsalt og nýmalaður pipar
Bræðið smjörið á stórri pönnu og bætið lárviðarlaufinu út í. Saltið og piprið hveitið og veltið kjötinu upp úr því. Leggið kjötið á pönnuna og steikið á hvorri hlið í fjórar mínútur. Hellið þá marsala víninu út á og sjóðið í eina
til tvær mínútur. Takið kjötið af pönnunni og haldið því heitu. Bætið Saclá
sveppa- og marsala sósu á pönnuna, svo og rjómanum. Komið upp suðu og setjið
þá kjötið aftur út í. Sjóðið þar til kjötið er heitt í gegn. Komið upp suðunni á söltuðu vatni í stórum potti. Sjóðið pastað þar til það er "al dente" skv. leiðbeiningum. Sigtið og setjið á heita matardiska. Raðið kjötinu ofan á pastað og ausið sósunni yfir. Berið fram með muldum pipar úr kvörn.
Nýjustu færslur
- 2.1.2014 Áramót
- 3.10.2011 Saltfiskur með ólífum, chilipipar og hvítlauk
- 15.10.2009 Innbakað lambafille með Duxelles
- 2.5.2009 Fylltur kjúklingur á ítalska vísu
- 23.4.2009 Lasagne með kotasælu
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
bjarkey
-
bjarnihardar
-
dofri
-
ellidiv
-
estersv
-
georg
-
gmaria
-
gretaulfs
-
gudnim
-
harhar33
-
hector
-
helgigunnars
-
jp
-
juljul
-
klossi
-
kolbrunerin
-
krutti
-
ktomm
-
liljabjork
-
lillagud
-
loathor
-
maggibraga
-
magnolie
-
magnusg
-
magosk
-
margith
-
mariaannakristjansdottir
-
neytendatalsmadur
-
omarpet
-
palmig
-
pandora
-
ranka
-
saelkeri
-
sax
-
sibbulina
-
siggagudna
-
siggith
-
skordalsbrynja
-
skulablogg
-
slembra
-
solir
-
steingerdur
-
sur
-
thrudur
-
tildators
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vestskafttenor
-
vga
-
zunzilla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 133066
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hljómar vel, en það er ekki hægt að fá kálfakjöt í öllum búðum. Hvar þá helst? Kálfakjöt er nefnilega æðislegt með pasta. Smakkaði það á Ítalíu fyrst.
Steinunn Þórisdóttir, 28.2.2008 kl. 09:51
Ummm þessa ætla ég að prófa! Hvað heldurðu með að skipta út kálfa- eða svínasnitsel fyrir kjúklingabringur? Hefurðu prófað það?
Hrönn Sigurðardóttir, 28.2.2008 kl. 17:21
Ég hef ekki prufað það en það á að vera alveg hægt maður á að prufa því maður eyðileggur ekkert.Ég hef notað mikið saman kjúkling og pasta,skrúfur, fiðrildi og hólka og það er bara gott.
Guðjón H Finnbogason, 28.2.2008 kl. 22:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.