Péturborg

 

 Þetta er mynd af  fjölskyldunni í pétursborg í Vestmannaeyjum.

Sama fjölskyldan bjó þar í um 60 ár.

Fjolsk_mynd frá Pétursborg

 

Talið frá vinstri:Jón ,Björn,Gunnar,Vigfús,Hallvarður og Finnbogi

Fremri röð:Lilja,Sigurður Vigfússon,Ingibjörg Björnsdóttir og Guðbjörg.

 Jón bjó í mörg ár á Neskaupsstað var klæðskeri  að ment og var líka kaupmaður en bjó síðustu árin í Reykjavík

Hann var giftur Ásgeði Guðmundsdóttur og áttu þau fjögur börn.

Björn bjó í Vestmannaeyjum á Faxastíg vann í verslun Haraldar Eiríkssonar,hann starfaði líka mikið fyrir leikfélagið í eyjum og var á fyrri hluta síðustu aldar hringjari slökkviliðsins. Hann var giftur Ingveldi Jónsdóttur og áttu þau tvær dætur.

Gunnar bjó í Reykjavík var verkstjóri hjá Eimskipafélaginu við lestun og losun skipa.Hann var giftur Guðbjörgu Guðnadóttur og áttu þau einn son.

Vigfús var skipstjóri og útgerðarmaður í eyjum síðustu árin vann hann á sjúkrahúsinu, hann bjó á Bjargarstíg 4. Hann var giftur Jónu Vilhjálmsdóttur og áttu þau tvær dætur

Hallvarður vann sem gæslumaður leikvalla í eyjum bjó alla sína æfi í Pétursborg.Hann var giftur Sigríði Guðjónsdóttur og áttu þau fimm börn

Finnbogi var sjómaður í eyjum til ´46 flutti þá til Reykjavíkur var verkstjóri á Keflavíkurflugvelli og endaði sína starfsæfi sem fisksali,hann bjó í Pétursborg og Hásteinsvegi 38 þegar hann var í eyjum.Hann var giftur Sigurbjörgu Guðjónsdóttur og áttu þau tvö börn

Lilja var Húsmóðir að Hásteinsvegi 58 Hún var gift Magnúsi Jónsyni og áttu þau fjögur börn

Guðbjörg var Húsmóðir að Laugalandi Vestamannabraut 54í eyjum en bjó síðustu árin í Reykjavík dvaldi lengi á Vífilstöðum. Hún var gift Guðlaugi G Þorsteinssyni þau áttu sex börn.

Sigurður Vigfússon var sjómaður í eyjum og var líka við beitningar.Hann var fæddur að Hofi í Öræfum. Foreldrar: Vigfús Sigurðsson, fæddur 22. september 1826, Reynivöllum
og Helga Ólafsdóttir, fædd 11. september 1835, Hofsnesi.

Ingibjörg var Húsmóðir í Pétursborg. Hún var fædd að Kirkjubæ í Vestmannaeyjum. Foreldrar: Björn Einarsson fæddur 1. maí 1828, Hrútafelli, A-Eyjafjallahreppi
og k.h. Guðríður Hallvarðsdóttir, fædd 13. júní 1827, Söndum A-Eyjafjallahreppi.

Þau heiðurshjón hófu búskap í Bergþóruhúsi á Seyðisfirði og fluttu til eyja 1909 og bjuggu fyrst á Kornhól og byggðu síðan Pétursborg og bjuggu þar til dauðadags Hann dó 1939 og hún 1945 Lilja var sú eina sem var fædd í eyjum hin voru fædd á Seyðisfirði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Bragason

Fróðleg lesning og skemmtileg, frændi.

Magnús Bragason, 1.3.2008 kl. 20:26

2 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Þakka þér fyrir það Maggi minn,þetta eigum við sameiginlega

Guðjón H Finnbogason, 1.3.2008 kl. 20:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðjón H Finnbogason
Guðjón H Finnbogason

Ég er kokkur og hef unnið við matargerð síða 1963. 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband