Þessi er góður

Veisla í vikulokin - Hörpuskelfiskur með hummus á baunabeði

 

Uppskrift fyrir sex:

Baunasalat (baunabeð)

1/2 dós kjúklingbaunir
100 gr. hrossabaunir (soðnar samkv. uppl.) eða 400 gr. soðnar úr dós (án vatns)
100 gr. þurrkaðar nýrnabaunir (lagðar í bleyti yfir nótt og soðnar samkv. leiðb. á pakka, eða 1 dós, 400 gr. soðnar án vatns)
1 miðlungs laukur (sneiddur)
Ólífuolía
Sítrónusafi
Salt og pipar
1 grein söxuð steinselja

Mýkið laukinn í olíunni, en gætið þess að hann brúnist ekki. Setjið baunirnar og steinseljuna saman við ásamt salti, pipar og sítrónusafa eftir smekk og blandið öllu vel saman. Hitið i 2-3 mín.

 

Hummus

Hummus er arabísk-grískættaður réttur sem lagaður er úr mörðum soðnum kjúklingabaunum ásamt sesammauki (tahini), hvítlauk og sítrónusafa. Einnig má leika sér með ýmis krydd og kryddjurtir og bæta út í ídýfuna, t.d. steinselju. Sósan er mjög matarmikil og er yfirleitt borin fram með forréttum ýmiss konar eða hráu grænmeti.

1 dós kjúklingabaunir (sjóðið í 5 mín. og látið vatn drjúpa vel af)
1-2 hvítlauksgeirar
Salt og pipar
Sítrónusafi
Ólífuolía

Setjið allt í blandara og maukið í jafnt mjúkt mauk. Bætið ólífuolíu og sítrónusafa saman við í mjórri bunu eftir þörfum og blandið áfram.

Og þá er það hörpuskelfiskurinn...

18 stórir hörpuskelfiskar (eða fleiri smærri) eru steiktir á sjóðheitri forhitaðri fitulausri pönnu í 1-3 mín. á hvorri hlið. Saltið og piprið eftir smekk.

Berið fram þannig:
Setjið hummus og baunasalat hlið við hlið til helminga í sex hörpuskeljar. Raðið þremur hörpuskelfiskum ofan á og dreypið þar yfir nokkrum dropum af góðri ólífuolíu og hakkaðri steinselju.

Vínið með:
Hvort sem er með forréttinum eða smokkfiskaðalréttinum, er hvítvín næstum því "must". Það má hins vegar ekki vera of krefjandi. Gott Soave-vín er kjörið með báðum réttunum, þó ólíkir séu, t.d. Bolla Tufaie Soave Classico, sem fæst í sérverslun ÁTVR Heiðrún og Kringlunni. Tufaie hentar vel fiskréttum, hvítu kjöti og léttum forréttum.

Franski matarheimspekingurinn, og hæstarréttardómarinn, Brillat-Savarin sagði að máltíð án osts væri eins og falleg kona sem á vantaði annað augað. Ég get vel tekið undir þetta með honum, en hins vegar vil ég líka meina að máltíð án ávaxtar og jafnvel einhvers enn sætara, megi líkja við fallega sparibúna skólausa konu, sem verður því að sitja allt kvöldið og fylgjast með dansandi næturgleðinni. Munið því eftir eftirréttinum!
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Afar girnilegt.

Hólmdís Hjartardóttir, 2.3.2008 kl. 17:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðjón H Finnbogason
Guðjón H Finnbogason

Ég er kokkur og hef unnið við matargerð síða 1963. 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband