Sunnudagur, 2. mars 2008
Cannelloni
Cannelloni með aspas og eggjum![]() 1 pakki ferskar lasagnaplötur (Rana) nokkrar Goudaostnseiðar (jafnmargar pastaplötunum) handfyllisbúnt af grænum ferskum aspas béchamelhveitisósa nýrifinn parmesanostur ögn af múskati salt og pipar 6 egg 1 msk edik Þvoið aspas og skerið neðsta harða hluta stilksins frá. Sjóðið aspasinn í háum potti í miklu vatni, léttsöltuðu, þar til mjúkur "al dente". Þekið í millitíðinni aflangt eldfast form með béchamel-sósunni (uppbökuð hveitismjörsósa með ögn af múskati og salti og pipar). Rúllið tveimur aspasstilkum inn í hverja ostsneið og síðan hvoru tveggja inn í pastaplötuna, eftir endilöngu. Raðið cannelonirúllunum í formið þétt upp við hvor aðra, þar til hafið klárað plöturnar og aspasinn. Þekið vel með béchamel-sósu og stráið ögn af salti og slatta af rifnum parmesaosti yfir. Bakið við 175°C í ca. 20 mín. Eggin: Látið suðu koma upp á 1 lítra af vatni og bætið 1 msk. af edik út í. Brjótið eggin eitt af öðru í bolla og hellið varlega í sjóðandi vatnið og minnkið hitann. Sjóðið í 3-4 mín. Eggin skulu vera frekar linsoðin því rauðan þjónar tilgangi sósu. Ef eggin eru fersk umlykur hvítan vel rauðuna og þegar þið veiðið eggin upp með fiskispaða líkjast þau litlum skýhnoðrum með appelsínugult hjarta. Léttskolið eggin í spaðanum með vægri bunu af vatni og leggið til hliðar. Sjóðið eggin svona koll af kolli. Þeim má halda heitum í 70°C heitu vatni ef vill. Setjið tvær cannelonirúllur á hvern disk og eitt egg ofan á. Skreytið diska t.d. með aspassprotum. |
Nýjustu færslur
- 2.1.2014 Áramót
- 3.10.2011 Saltfiskur með ólífum, chilipipar og hvítlauk
- 15.10.2009 Innbakað lambafille með Duxelles
- 2.5.2009 Fylltur kjúklingur á ítalska vísu
- 23.4.2009 Lasagne með kotasælu
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
bjarkey
-
bjarnihardar
-
dofri
-
ellidiv
-
estersv
-
georg
-
gmaria
-
gretaulfs
-
gudnim
-
harhar33
-
hector
-
helgigunnars
-
jp
-
juljul
-
klossi
-
kolbrunerin
-
krutti
-
ktomm
-
liljabjork
-
lillagud
-
loathor
-
maggibraga
-
magnolie
-
magnusg
-
magosk
-
margith
-
mariaannakristjansdottir
-
neytendatalsmadur
-
omarpet
-
palmig
-
pandora
-
ranka
-
saelkeri
-
sax
-
sibbulina
-
siggagudna
-
siggith
-
skordalsbrynja
-
skulablogg
-
slembra
-
solir
-
steingerdur
-
sur
-
thrudur
-
tildators
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vestskafttenor
-
vga
-
zunzilla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta verður sko prófað fljótlega..mmm
Hólmdís Hjartardóttir, 2.3.2008 kl. 23:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.