Beck´s flaska 33cl

Tegund: Bjór
Land: Þýskaland
Framleiðandi: Inbev
Stærð: 33cl
Verð: 189 kr.
Sölustaðir: ÁTVR - 500 tegunda verslanir

 

Beck´s er ekta þýskur lagerbjór, bruggaður eftir svokölluðum "reinheitsgebot" reglum frá 1516, sem kveða á um að bjór megi aðeins brugga úr möltuðu byggi, humlum, geri og vatni.

Beck´s er stærsti útflutningsbjór þýskalands og er seldur í yfir 125 þjóðlöndum og heldur þar með einkennismerki þýsks bjórs á lofti um víða veröld.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ari Björn Sigurðsson

Ég hef margann bjórinn smakkað, en alltaf fer ég aftur í Becks-inn ...besti bjór í heimi

Ari Björn Sigurðsson, 4.3.2008 kl. 16:29

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Hvað telur þú Guðjón að vatnið sem bjórinn er bruggaður úr hafi farið oft í gegnum hreinsun áður en það fór til bjórgerðarinnar?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 4.3.2008 kl. 19:21

3 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Ég er lítill bjórmaður ég hætti að drekka fyrir tuttugu árum en fyrr hafði ég góðan aðgang að bjór en fannst hann aldrei sérstakur,kaldur morguninn eftir var í lagi.Ég vildi helst Danskan eða þá Þýskan.Ég veit ekki með vatnið Heimir en veit samt að Íslenskt vatn er mjög got í þennan mjöð

Guðjón H Finnbogason, 4.3.2008 kl. 19:42

4 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Það er mjög algengt á meginlandinu að vatnið hafi farið nokkrum sinnum gegnum mannslíkamann og hreinsikerfi borganna áður en það er notað til framleiðslu á bjór og öðrum "matvælum".

Ég er viss um að íslendingar nota einna hreinasta vatn í Evrópu til bjórframleiðslu og háir það bjórnum okkar stundum á erlendri grundu því fólk er orðið vant dauðu og kalkríku meginlandsvatninu eða svokölluðu " sjömignu vatni".

Ég er líka hættur bjórdrykkju og því algerlega laus við að þurfa að drekka sjömiginn bjór.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 4.3.2008 kl. 22:42

5 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Mér finnst nú hinn íslenski Thule bjór úr flöskum bestur, ég hef smakkað óteljandi tegundir bjórs.  Að mínu mati er Thule bestur

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 5.3.2008 kl. 01:52

6 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Jedúdda mía, ég á einn kaldan Beck's í ísskápnun, fer heim úr vinnunni í snarhasti.

Mikill er máttur auglýsingarinnar.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 5.3.2008 kl. 19:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðjón H Finnbogason
Guðjón H Finnbogason

Ég er kokkur og hef unnið við matargerð síða 1963. 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 133065

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband