Aldarafmæli Pabba

Aldarminning

 

 

Finnbogi Rósinkranz Sigurðsson.

 

 

20.12 1906 – 31.01.1969

Þann 20. desember n.k. verða liðin 100 ár frá fæðingu föður míns Finnboga Rósinkranz Sigurðssonar. Hann var fæddur í Bergþóruhúsi á Vestdalseyri við Seyðisfjörð árið 1906. Hann flutti til Vestmannaeyja árið 1909 og var jafnan kenndur við Pétursborg hús foreldra sinna. Foreldrar hans voru Ingibjörg Björnsdóttir fædd að Kirkjubæ í Vestmannaeyjum 1. september 1886 og Sigurður Vigfússon fæddur að Hofi í Hofsókn Austur Skaftafellssýslu 14.september 1865. Hann var næst yngstur af átta systkinum sem nú eru öll látin. Faðir minn fór ungur til sjós og var sjómennska starf hans langt fram á fimmta áratuginn en þá var hann orðinn fjölskyldumaður. Hann sótti konuefni sitt í Austur-Eyjafjallahrepp að Raufarfelli en þar fæddist móðir mín Sigurbjörg Guðleif Guðjónsdóttir þann 19. febrúar 1916. Hún var dóttir Þorbjargar Jónsdóttur fædd að Rauðsbakka 16.nóvember 1884 og Guðjóns Vigfússonar fæddur að Raufarfelli 17. júní 1887 og var hún úr hópi ellefu systra sem nú eru allar látnar. Þau giftu sig í Vestmannaeyjum 1936 þar sem þau bjuggu fyrstu árin. Þann 21. febrúar giftingarárið fæddist dóttirin Ingibjörg Sigríður. Faðir minn hafði atvinnu af sjósókn við hefðbundnar fiskveiðar og einnig var siglt með fisk til útlanda. Á stríðsárunum tóku þær siglingar á hann, og var hann ekkert áfjáður að ræða þetta tímabil í lífi sínu. Fljótlega eftir stríð  hætti hann á sjó og fluttu þá foreldrar mínir til Reykjavíkur og bjuggu fyrst á Framnesvegi 57 en þar fæddist ég þann 5.ágúst 1947. Seinna það ár var svo flutt að Silfurteigi 3 en það húsnæði byggðu þau. Þegar þau fluttu suður þá hóf faðir minn störf hjá byggingafélaginu Brú. Það fyrirtæki steypti upp hús og önnur mannvirki. Í kring um 1950 var hann beðinn um að taka að sér steypuvinnuflokk á Keflavíkurflugvelli hjá fyrirtæki sem þá hét Hamilton en síðar varð það að Íslenskum Aðalverktökum. Hann sá um að steypa upp fyrstu íbúðablokkirnar þar og einnig sá hann um uppbyggingu flugbrauta á alþjóðavellinum, sem og vegum innan vallarsvæðisins. Hjá Hamilton var hann vinsæll og naut virðingar undirmanna sinna. Þénuðu menn hans vel vegna mikillar vinnu á hvaða tíma sólahringsins sem var og gekk hann þar undir nafninu Næturvinnu-Bogi. Á þessu fékk ég sönnur er ég var við störf á vellinum um tíu árum eftir að hann hætti þar. Þá naut ég þess hvernig hann hafði unnið traust yfirmanna sinna og var það ekki í eina eða síðasta sinn sem ég hef notið þess vera sonur hans við slíkar aðstæður. Það hefur verið 1960 eða um það leyti að hann keypti fiskbúðina að Blönduhlíð 2 í Reykjavík. Í fiskvinnu var hann á heimavelli þar kunni hann vel til verka og gekk honum vel að reka fiskbúðina. Hann uppgötvaði líka fljótlega að ekki var nóg að vera með fisk, það varð líka að vera með góðan garðmat. Hann gerði samning við kartöflubónda sem útvegaði honum úrvals kartöflur og rófur allan þann tíma sem hann rak búðina. Á þessum árum mátti ekki vera með fiskbúðir upphitaðar og var þetta því kalsa vinna á veturna. Kuldinn fór illa í hann en hann var ekki sú manngerð að vera kvartandi eða margmáll um það eða sitt heilsufar. Um svipað leyti og hann keypti fiskbúðina festu þau kaup á sérhæð í Stigahlíð sem var í byggingu. Undir það síðasta var hann orðinn frekar  þreklítill og sótti hjálp hjá dóttursyni sínum og nafna. Bogi litli eins og hann var kallaður af fjölskyldunni, fór með honum á morgnana að ná í fisk niður á bryggju eða í fiskmiðstöð sem var dreifingarmiðstöð fisksala á þessum tíma. Þetta er fyrir tíma fiskmarkaðanna. Þeir nafnar voru saman morguninn sem hann dó. Þeir voru búnir að koma fisknum fyrir þegar hann bað nafna sinn að fara bara heim sem hann og gerði en sjálfur fór hann til vinafólks í húsinu og bað um að fá að leggja sig. Kallað var eftir aðstoð og dó hann á leiðinni á sjúkrahús. Það var 31.janúar 1969 þá 63.ára gamall. Hann var jarðsettur í Fossvogskirkjugarði. Móðir mín varð ekkja 53.ára og giftist ekki aftur. Hún lést á Landspítalanum 30.október 2005 þá 89 ára  og södd lífdaga. Alltaf syrgði hún mann sinn. Foreldrar mínir lifðu í góðu hjónabandi sem einkenndist af virðingu og væntumþykju. Nutum við þess systkinin að eiga góða foreldra sem vöktu yfir velferð okkar og fjölskyldna okkar. Frændfólki sínu voru þau hjálpleg ef hægt var. Þau voru mjög frændrækin enda var mikill gestagangur á heimilinu. Nutu þau þess, veittu vel og voru mjög gestrisin. Fólk kom líka til lengri dvalar og dvöldu kannski yfir veturinn á heimilinu og þótti þeim það sjálfsagt. Það er margs að minnast frá þessum tíma, sunnudagsrúnturinn niður á bryggju að skoða skip og báta. Gaman var líka að vera á “vellinum”. Hann kom og sótti mig til Reykjavíkur ef það var frí í skólanum. Fékk ég þá að vera með honum og  njóta ævintýraheimsins sem manni fannst Keflavíkurflugvöllur vera. Þau nutu þess verulega að umgangast barnabörn sín og fengu þau að vera hjá þeim um styttri eða lengri tíma. Ólu þau dótturson sinn Finnboga Rósinkranz upp og þóttu mjög vænt um hann. Ég hefði þegið það vel að fá að vera lengur með honum en hann dó þegar ég var á tuttugugasta og öðru ári. Minningarnar um hann eru ljúfar.

Guðjón Hjörleifur.

Niðjar þeirra hjóna eru:

a)Ingibjörg Sigríður f.21.febrúar 1936 gift Ingólfi Kristjánsyni f.14.marz 1935 og eiga þau sex syni

a)Finnbogi Rósinkranz f.12.11.1956  giftur Höllu Hörpu Stefánsdóttir og eiga þau a) Ingólfur  Stefán sambýliskona hans er Sigrún Þórarinsdóttir og eiga þau soninn Tristan

b)Heimir Rósinkranz sambýliskona hans er Auður Kapitola Einarsdóttir og eiga þau dótturina Þórný Hörpu Rósinkranz

Fyrir átti Finnbogi son, Óskar Aðalstein sem er giftur Önnu Friðrikku Guðjónsdóttur og eiga þau dótturina Ljósbrá Önnu.

b)Kristján Friðrik f.20.apríl 1958 var giftur Söndru Gunnarsdóttur og eiga þau a) Arnar b) Sigurrós c) Olgeir Sturla.

c)Einar Berg f.10.ágúst 1959 var giftur Helgu Aradóttur og eiga þau a)Ari b) Tómas c) Jóhann Berg.

d)Leifur Þór f. 7.apríl 1961 giftur Sigurlaugu Guðný Þórarinsdóttir og eiga þau

 a) Jakob Þór b) Skúli Þór c) Finnbogi Þór.

 e)Olgeir f.3.janúar 1964 giftur Jóhönnu Bjarnadóttir og eiga þau a)Kristófer Máni b)      Benidikt Bjartur.

f)Sigurður Ingi f.15.júní 1977 giftur Tinnu Dröfn Marinósdóttir og eiga þau a)Alexandra Brynja b) Marinó c) Thelma Dröfn d) Ingólfur Darri e) Gabríel Tumi

 

b)Guðjón Hjörleifur f.05.ágúst 1947  giftur Jóhönnu Jónu Hafsteinsdóttur f.25.marz 1951 og eiga þau fjórar dætur:

a)Lilja Hafdís f.04.06.1970 gift Pálma Hamilton  og eiga þau þrjá syni a) Arnór Rafn  b)Kristófer Hamilton  c) Alexander Jóhann.

b)Sigurbjörg Guðleif f.28.06.1975 í sambúð með Friðgeiri Gíslasyni og átti hún fyrir dótturina  Helgu Jónu

c)Rósa María f.21.03.1980. í sambúð með Stefáni Sigurðsyni  og eiga þau

a) Ingibjörgu Ósk  b) Jóhönnu Ír  c) Tinnu Sif  d) Sigurð og Ellen Ingu.

D)Sunna Dögg f.20.09.1986


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband