Crème caramel

  

 

 

 

 2 lítrar nýmjólk
20 egg
500 g sykur + 6 msk.
2 vanillustangir
rifinn börkur af sítrónu
rifinn börkur af appelsínu

 

Látið suðuna á mjólk koma upp. Notið pott sem ekki festist við. Þeytið saman egg og 5 msk af sykri og hrærið saman við mjólkina þegar suðan kemur upp. Sjóðið áfram í nokkrar mín., hrærið stanslaust í á meðan og gætið þess að ekki formist kekkir. Sjóðið í millitíðinni 500 g af sykri í vatni (vatnið skal rétt þekja sykurinn) þar til sykurinn hefur tekið á sig smá lit. Hellið því næst sykurblöndunni í lítil búðingaform og mjólkurblöndunni þar ofan á. Leggið formin í fat og bakið ív atnsbaði í 180 gr. heitum ofni þar til búðingurinn fer að fá á sig ljósgylltan lit. Látið kólna í ofni. Hvolfið búðing á eftirréttardiska.
*Vel má hugsa sér að raða blönduðum skógarberjum eða öðrum ávöxtum í kring, en venjulegast er búðingurinn borðaður einn og sér.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:

Spennandi uppskrift en kannski fullstór fyrir mína fjölskyldu

, 2.12.2008 kl. 10:43

2 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Mitt jólaboð er alls ekki svona stórt.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 2.12.2008 kl. 20:18

3 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Þið minkið hana bara deila í með tveimur þá er það fínt,ég elda fyrir 20 mans þess vegna er hún stærri

Guðjón H Finnbogason, 2.12.2008 kl. 21:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband