Kjúklinga Fajitas með káli og rauðlauk

Uppskrift fyrir tvo:

2 kjúklingabringur
2 stk. Santa Maria Wrap Tortilla
2 msk. balsamik edik (balsamic vinegar)
1 msk. sítrónusafi
2 tsk. ólífuolía
1/2 tsk. oregano

Meðlæti:
1/4 rauðlaukur, niðurskorinn
Kál
Santa Maria salsasósa

 

Setjið kjúklingabringurnar, balsamik edikið, sítrónusafann, ólífuolíuna og oregano í plastpoka sem hægt er að renna fyrir ("zip-lock" poka). Geymið í kæli í 8 klst.

Takið kjúklingabringurnar úr pokanum og steikið þær á pönnu við miðlungshita.

Hitið tortillurnar samkvæmt leiðbeiningunum á umbúðunum.

Setjið kjúkling, kál, rauðlauk og salsasósu á tortillurnar. Rúllið þeim síðan upp og berið fram.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband