Grillaðar svínakótelettur með Mango Chutney

 

  

  

  Uppskrift fyrir fjóra

4 stk. svínakótelettur
3 msk. Patak´s Mango Chutney
1 tsk. Patak´s Vindaloo Paste
1/2 tsk. salt
1/3 tsk. svartur pipar
2/3 msk. olía

 

Kryddið kóteletturnar með salti og pipar. Setjið Mango Chutney og Vindaloo kryddmaukið í skál og blandið vel saman. Þekið síðan hverja kótelettu með maukinu. Setjið afganginn af maukinu til hliðar. Grillið kóteletturnar á heitu grilli, smyrjið olíu á hliðarnar á meðan steikingu stendur. Snúið kótelettunum reglulega við svo þær steikist jafnt á báðum hliðum. Þegar kóteletturnar eru alveg að verða tilbúnar, setjið afganginn af maukinu ofan á og grillið þar til kóteletturnar eru tilbúnar.

Berið fram með hrísgrjónum og agúrkusalati.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður

Girnilegt eins og venjulega.

Guðs blessun og góða helgi.

Kær kveðja/Rósa 

Rósa Aðalsteinsdóttir, 28.11.2008 kl. 23:04

2 identicon

Heyrðu þennan rétt fékk ég hjá vinkonu minni fyrir 20 árum og gleymi honum ekki ummmmmm

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 30.11.2008 kl. 11:56

3 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Það gamla er líka gott

Guðjón H Finnbogason, 30.11.2008 kl. 16:41

4 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

Glæsilegur réttur, en eiga þetta virkilega að vera 20 egg?

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 2.12.2008 kl. 21:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband