Pönnusteikt sirloin með gljáandi rauðvínssósu

 

 

 

 

 

 

Undirbúningur og eldun: 20 mín
Fyrir 4

 

4x220g sirloin steikur, vel verkaðar og fitusprengdar
salt og pipar
5 skalotlaukar
50g sveppir
3 sneiðar beikon
3 dl kjötsoð, eða vatn og kjötkraftur
½ tsk timjan
2 dl bragðmikið rauðvín
1 lárviðarlauf
30g kalt smjör
sósujafnari eða maisenamjöl úthrært í smá köldu vatni

 

Undirbúningur
Skerið í gegn um fituröndina og sinina á steikunum á nokkrum stöðum til að koma í veg fyrir að steikin missi safa þegar steikin hitnar og sinin herpist saman. Skerið beikonið smátt og saxið sveppina og laukinn.

 

Matreiðsla
Byrjið á að brúna steikurnar upp á rönd til að brúna fituna vel. Leggið þá steikurnar niður og brúnið vel á pönnunni, kryddið með salti og pipar, setjið á ofngrind.  Brúnið beikonið og grænmetið á pönnunni í fitunni sem varð eftir þegar kjötið var steikt. Bætið smá olíu á ef þörf krefur. Bætið soðinu og rauðvíninu á pönnuna ásamt timjan og lárviðarlaufinu, sjóðið niður um helming. Þykkið með sósujafnaranum, takið af hitanum og pískið köldu smjörinu í bitum út í sósuna. Athugið að sósan má ekki sjóða eftir að smjörið er komið í. Setjið steikurnar í 180 c heitan ofn í u.þ.b. 3 mínútur til að klára steikinguna.

 

Framreiðsla
Berið steikurnar fram með rauðvínssósunni, litríku smjörsteiktu grænmeti og soðnum eða bökuðum kartöflum.

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður.

Þetta lítur vel út á blogginu.  Segð þú mér hvað við getum  notað í staðinn fyrir rauðvín í sósuna og eins hvað getum við notað í staðinn fyrir hvítvín o.s.frv.

Vertu Guði falinn

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 24.8.2008 kl. 22:47

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Vildi að einhver mundi elda þetta fyrir mig. Kær kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 24.8.2008 kl. 23:18

3 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Guð minn góður ...ég er eins og eðjóti...hvað er sirloin????

Rúna Guðfinnsdóttir, 25.8.2008 kl. 18:53

4 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Grinilegt, takk fyrir mig frændi.

Ester Sveinbjarnardóttir, 25.8.2008 kl. 18:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðjón H Finnbogason
Guðjón H Finnbogason

Ég er kokkur og hef unnið við matargerð síða 1963. 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband