Færsluflokkur: Íþróttir
|
Fyrir 4-5 Innihald: 2 msk extra virgin ólifiolíu 1 stk rauðlaukur 4 stk hvítlauksrif 4 stk tómatar, grófsaxaðir ½ tsk safran þræðir 1 bolli Basmati hrísgrjón 11 gr kjúklingakraftur "Oscar" 1 ½ bolli vatn 1 tsk salt 1 tsk nýmulin pipar 170 gr smálúðuflök 150 gr rækjur 20 stk kræklinga (má vera í dós) ½ bolli ferskar grænar baunir ¼ bolli söxuð fersk steinselja Aðferð: 1 Hitið ofninn í 200°c. Hitið olíuna í pönnu sem má fara inní ofn, steikið hvítlaukinn, laukinn en ekki brúna eða u.þ.b. 3 mínútur, setjið þá tómatana og safranið útí og steikið til viðbóta í ca. 2 mínútur. 2 Látið suðuna koma upp á vatninu og hrærið kjúklingakraftinum vel saman við. 3 Hrærið hrísgrjónunum saman og hellið kjúklinasoðinu útí, kryddið með salt og pipar, færið pönnunna ínní ofn og bakið í ca. 35 mínútur eða þangað til að hrísgrjóninn eru orðin mjúk. Á meðan hrísgrjóninn eru að eldast þá skerið smálúðuna í bita og þrífið kræklingana. 4 Setjið kræklingana, smálúðubitana, rækjurnar og kryddið með salt og pipar og bakið í ca. 15mínútur í viðbót. 5 Þegar Sjávarréttar-Paella er tilbúinn þá dreifið steinseljunni yfir og berið fram strax.
|
Íþróttir | 24.11.2008 | 22:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
|
|
|
Undirbúningur og eldun: 20 mín
4x220g sirloin steikur, vel verkaðar og fitusprengdar
Undirbúningur
Matreiðsla
Framreiðsla
|
|
|
Íþróttir | 20.11.2008 | 15:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Íþróttir | 19.11.2008 | 19:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Íþróttir | 18.11.2008 | 18:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Haltu áfram, sagði presturinn, frekar áhugalaus.
Sko, ég var úti á golfvelli og náði þessu svakalega góða drævi á fjórðu braut, sem er par sex, en kúlan lenti í símalínu sem lá yfir völlinn og datt niður eftir aðeins um þrjátíu metra.
Og þá blótaðirðu náttúrulega, sagði presturinn.
Nei, sagði nunnan. Því skyndilega kom íkorni hlaupandi og stal kúlunni minni.
Varð það þá sem þú blótaðir, góða mín?
Nei, ekki þá, því allt í einu kom örn fljúgandi og læsti klónum í íkornann og þar sem hann flaug í burtu með feng sinn þá missti íkorninn kúluna.
Þá hefurðu auðvitað blótað, sagði presturinn, orðinn nokkuð áhugasamur.
Nei, nei, sagði nunnan. Sko, kúlan datt niður á stærðar grjót og endurkastaðist aftur inn á brautina og þaðan inn á grínið og stoppaði síðan aðeins innan við hálfan meter frá holunni.
Presturinn þagði um stund og fitlaði við krossinn sem hann bar um hálsinn. Svo sagði hann með fullvissu í röddinni: Kona, þú hefur þá klikkað á helvítis púttinu.
Kveðja
Íþróttir | 18.11.2008 | 17:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Rjómarönd m/ ferskum jarðaberjum.
12 stk egg. 3 bollar sykur. 24 stk matarlím. 1,5 ltr rjóma. 3 dsl sólberjasaft. 1,8 kg jarðaber. Tætið jarðaberin lauslega. Míkið matarlímið í köldu vatni hita saftina kreista vatnið úr matarlíminu og leisa það upp í saftinni. Þeyta egg og sykur mjög vel. Stíf þeyta rjómann í stórri skál og blanda egg og sykurblöndunni saman við rjómann ásamt matarlíminu. Hrærið jarðaberjunum varlega saman við með sleif. Setja blönduna í litlar eftirréttarskálar og látið stífna í kæli í allt að 3 klkst. Skreytið með rjómatoppi, jarðaberjum og súkkulaðispæni. Það er í lagi að laga þennan eftirrétt daginn áður en á að nota hann.Ef hann klárast ekki má nota hann sem millilag í rjómatertu.
(Unnið af G.H.Finnbogasyni)
Íþróttir | 16.11.2008 | 16:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Maður í loftbelg sá að hann var að missa hæð. Hann tók eftir konu á jörðinni, lækkaði flugið aðeins meira og kallaði til hennar: "Afsakið, geturðu hjálpað mér? Ég lofaði að hitta vin minn fyrir klukkutíma, en veit ekki hvar ég er."
Konan svaraði: "Þú ert í loftbelg sem svífur í 10 metra hæð, milli 40. og 41. Norðlægrar breiddargráðu og milli 59. og 60. Vestlægrar lengdargráðu."
"Þú hlýtur að vinna við tölvur", sagði loftbelgsmaðurinn.
"Það geri ég", svaraði konan. "Hvernig vissirðu það?"
"Nú", svaraði maðurinn, "allt sem þú sagðir mér er tæknilega rétt, en ég hef ekki hugmynd um hvaða gagn er af þeim upplýsingum, og reyndar er ég enn villtur. Satt að segja þá hefur ekki verið mikil hjálp frá þér. Ef eitthvað er þá hefurðu helst tafið ferð mína."
"Konan svaraði: Þú hlýtur að vinna við stjórnun."
"Já", sagði maðurinn. "En hvernig vissir þú það?"
"Nú", sagði konan, "þú vissir hvorki hvar þú ert né hvert þú ert að fara. Eintómt loft hefur komið þér þangað upp sem þú ert. Þú gafst loforð sem þú hefur ekki hugmynd um hvernig á að efna og þú ætlast til þess að fólk fyrir neðan þig leysi þín vandamál. Reyndar ertu í sömu stöðu og þegar við hittumst, en nú er það einhvern veginn mín sök
Íþróttir | 11.11.2008 | 16:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Bringur af 4 svartfuglum
2 msk. maísolía
Salt og pipar
Sósan
4 cl. portvín
1 ½ dl. svartfuglssoð
2 dl. rjómi
2 msk. rifsber, frosin
Salt og pipar
Úrbeinið bringurnar og fjarlægið af þeim himnuna. Hitið olíuna á pönnu, steikið bringurnar við góðan hita í 4 mín. hvorum megin og kryddið með salti og pipar.
Takið þær af pönnunni og haldið þeim heitum. Hellið portvíninu á pönnunna og leysið upp steikarskófina. Bætið síðan svartfuglssoðinu við ásamt rjómanum og sjóðið þetta saman í 2 mín. Setjið síðan rifsberjahlaup og rifsber út í, og látið það sjóða með í 1 mín.
Bragðið á sósunni og kryddið með salti og pipar eins og þurfa þykir. Hellið sósunni á diskana og setjið bringurnar ofan á, annaðhvort heilar eða skornar á ská í fallegar sneiðar.
Íþróttir | 6.11.2008 | 21:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Hráefni:
8-12 stk. hamflettar rjúpur
2 msk. olía
3 stk. lárviðarlauf
20 stk. einiber
salt og pipar
Sósa
1 l. soð af rjúpunum
1/2 l rjómi
80 gr. hveiti
80 gr. smjör
1 msk. kjötkraftur
salt og pipar
Meðlæti
3 stk. epli, gul
6 tsk. rifsberjahlaup
300 g spergilkál
6 stk. gulrætur
18-36 kartöflur (eftir stærð)
Leiðbeiningar:
Hlutið rjúpuna í sundur þannig að bringan og lærin séu laus frá hryggbeininu (sjá myndir). Skerið fóarnið í tvennt þannig að unnt sé að taka himnur innan úr ásamt ómeltu lyngi sem þar kann að vera. Hitið olíuna vel og steikið bringurnar og lærin, kryddið með salti og pipar. Síðan skal brúna fóarn, hjarta og bein vandlega. Látið rjúpurnar, innmatinn og beinin í pott, látið vatn fljóta yfir og sjóðið í 1 klst. ásamt lárviðarlaufum og einiberjum.
Sósan
Lagið smjörbollu úr hveiti, smjöri og sigtuðu soði. Rjómanum hellt saman við og kryddað með kjötkrafti, salti og pipar.
Meðlætið
Eplin eru afhýdd, skorin í tvennt og kjarnhreinsuð. Rifsberjahlaup er sett í kjarnhúsið. Bakað í ofni í 10 mínútur við 150°C.
Grænmetið og kartöflurnar soðið.
Hollráð
Látið rjúpubringurnar og meðlætið á fat með loki eða álpappír yfir og geymið á heitum stað á meðan sósan er löguð.
Bringan tekin frá hryggnum.
Lærin skorin af hryggnum.
Fóarnið skorið í sundur.
Himnan ásamt lyngi tekin úr fóarninu.
Íþróttir | 6.11.2008 | 21:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Uppskrift fyrir sex:
12 sneiðar af bagettu eða súrdeigsbrauði, eins dags gömlu
12 sneiðar af piquillo-papriku
12 ansjósur
4 meðal þroskaðir og bragðmiklir tómatar, skornir til helminga
1/2 bolli af fínt saxaðri steinselju
Spænsk Extra Virgin olía
Forhitið ofninn í 200°C. Bakið brauðsneiðarnar þar til þær eru orðnar brúnaðar. Nuddið þeim saman við tómathelmingana svo eftir sitji þunnt lag af tómatkjöti. Dreypið ólífuolíu yfir allar sneiðarnar. Setjið sneið af piquillo-papriku og ansjósu ofan á hverja sneið. Stráið steinselju yfir. Berist fram um leið, á meðan brauðið er enn stökkt.
Íþróttir | 6.11.2008 | 20:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Kokkur
31 dagur til jóla
Nýjustu færslurnar
Nýjustu albúmin
Tónlistarspilari
Færsluflokkar
Eldri færslur
Bloggvinir
- bjarkey
- bjarnihardar
- dofri
- ellidiv
- estersv
- georg
- gmaria
- gretaulfs
- gudnim
- harhar33
- hector
- helgigunnars
- jp
- juljul
- klossi
- kolbrunerin
- krutti
- ktomm
- liljabjork
- lillagud
- loathor
- maggibraga
- magnolie
- magnusg
- magosk
- margith
- mariaannakristjansdottir
- neytendatalsmadur
- omarpet
- palmig
- pandora
- ranka
- saelkeri
- sax
- sibbulina
- siggagudna
- siggith
- skordalsbrynja
- skulablogg
- slembra
- solir
- steingerdur
- sur
- thrudur
- tildators
- valgerdurhalldorsdottir
- vestskafttenor
- vga
- zunzilla
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 24365
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 21
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar